skip to main |
skip to sidebar
Nú er ég kominn austur á land í sæluna og hef ekki gefið mér tíma í að "blogga" fyrr en nú. En ég hef nú engar merkilegar fréttir að færa, nema þá helst að ég er kominn með Pikkan austur og það að hann er ökuhæfur! :-D
Kristján Krossdal kveður að sinni frá Skeiðahreppi!
Nú er þetta allt að smella saman! Eru þið að sjá þetta?! Nú á bara eftir að setja stuðarann á og þá má segja að frammendinn sé klár.. Tja, eða allavega þar til málningarferlið fer af stað. Stefnan er að keyra bifreiðina austur einhverntíman í maímánuði.
Er það ekki fínt? Þetta er nýja innrabrettið mitt. Það eru nú reyndar komin innrabretti báðu megin. Rafgeymarnir verða nú ekki staðsettir á brettunum heldur aftur á palli!
Kristján Krossdal kveður að sinni! B-)
Þetta mun víst vera hin eina sanna Búkolla, en hún var einmitt send í vist á bóndabænum Kleif í Breiðdal. Ekki tókst að ná nokkru bauli úr Búkollu í þetta skiftið en áhugasamir geta eflaust fengið hljóðin á snældu frá Þjóðminjasafninu. !!!BAULAÐU NÚ BÚKKOLLA MÍN!!!
Ég skaust í snögga jeppaferð með Pésa á Landrovernum inn í Norðurdal um páskana. Einhverra hluta vegna þá komumst við lengra á landbúnaðartækinu sjálfu heldur en þessi fíni 44" breytti Rocky!
Stundum er svo lítið að gera í vinnunni að maður verður bara að fá sér sláturkepp og gera andlit úr honum! :-)
Já, núna er byrjað að koma dekkinu fyrir. Þ.e. að klippa úr brettunum! Þetta er gert á mjög faglegan hátt, með þartilgerðum slípirokk.. Hafir þú lesandi góður áhuga á að líta á gripin þá er þér það alveg guðvelkomið!
Það er kannski ágætt að skerpa á því að svona leit Pikkinn út áður en hafist var handa við frammendasmíðina.
Nú eru hlutirnir farnir að gerast í húsnæði Heimsýnar.. Það er kominn smá vísir af frammenda á pikkan. Unnið verður hörðum höndum næstu daga við smíðar á þessum fyrrgreinda hlut, "frammendanum"! :-)
Það er tæpur mánuður síðan þessi tankur var smíðaður í Súkkuna. Tankurinn var smíðaður af Bjarnþóri, tja.. eða ölluheldur #V13 og bjóst hann við því að tankurinn mundi rúma um 200L. En annað kom nú á daginn þegar búið var að fylla hann með nokkuð mörgum 20L vatnsfötum. Tankurinn rúmar 370 og miðað við núverandi neyslutölu vísiverðs þá kostar um 50.000kr- að fylla hann!!!