27.2.08

...og eftir!


Hann lítur bara út fyrir að vera bíll að innan, ólíkt því sem hefur verið! :-D Það var bekkur í honum fyrir svoleiðis að þurfti að mixa stólana í hann.

Fyrir..


Svona hefur pikkinn litið út síðasta árið en um síðustu helgi varð breyting á.

13.2.08

Gæludýr


Jæja, þá hefur jeppaklúbburinn eignast gæludýr. Gæludýrið er dauð kind, eða allavega annar helmingurinn af hausnum. Kindin er góð sem gæludýr þar sem hún er alveg sérstaklega létt á fóðrum. Öll gæludýr verða nú að eiga sér nafn og kindin okkar fékk nafnið "Heimska Hauskúpan".

Misskilningur?


Þjð gæti hafa orðið smá misskilningur í færslunni hér á undan.. Ég var að sjálfsögðu að tala um Fordinn! :)

Fyrir
Ofboðslega
R*ðulega
Drengi

Sætur ??


Ég veit nú ekki hvort hægt sé að dæma útlitið út frá einni mynd, en... mér finnst hann nú samt nokkuð laglegur! :)

12.2.08

Þriðjudagur


Svona lítur þriðjudagurinn 12. febrúar út hjá mér.. Það er sól, 1-2 gráðu frost og alveg logn.. En fljótt skipast veður í lofti svo það er nú ekki víst að þetta haldist út daginn!

Pikkinn heima


Þarna gefur að lýta "Pikkan heima" sem er í minni eigu. Þessi mynd er tekin í jómfrúarferðinni sem farin var klukkan 6 á einhverjum sunnudagsmorgni upp í Fjarðarheiði veturinn 2005 - 2006!

11.2.08

Kristján Krossdal


Já, þetta er víst enginn annar en Kristján Krossdal sem er eigandi síðunnar og einn af stofnendum Jeppaklúbbsins Heimsýnar! :-D