skip to main |
skip to sidebar
Stundum er svo lítið að gera í vinnunni að maður verður bara að fá sér sláturkepp og gera andlit úr honum! :-)
Já, núna er byrjað að koma dekkinu fyrir. Þ.e. að klippa úr brettunum! Þetta er gert á mjög faglegan hátt, með þartilgerðum slípirokk.. Hafir þú lesandi góður áhuga á að líta á gripin þá er þér það alveg guðvelkomið!
Það er kannski ágætt að skerpa á því að svona leit Pikkinn út áður en hafist var handa við frammendasmíðina.
Nú eru hlutirnir farnir að gerast í húsnæði Heimsýnar.. Það er kominn smá vísir af frammenda á pikkan. Unnið verður hörðum höndum næstu daga við smíðar á þessum fyrrgreinda hlut, "frammendanum"! :-)
Það er tæpur mánuður síðan þessi tankur var smíðaður í Súkkuna. Tankurinn var smíðaður af Bjarnþóri, tja.. eða ölluheldur #V13 og bjóst hann við því að tankurinn mundi rúma um 200L. En annað kom nú á daginn þegar búið var að fylla hann með nokkuð mörgum 20L vatnsfötum. Tankurinn rúmar 370 og miðað við núverandi neyslutölu vísiverðs þá kostar um 50.000kr- að fylla hann!!!
Eins og sjá má á þessari mynd þá hefur eitthvað gleymst í síðustu klósettferð hjá þessum ágæta manni. Það hefur ekki enn fengist staðfest hvort það var sökum ölvunar eða einfaldlega bara gleymst.. Eins og þegar maður gleymir að sturta niður þegar maður er búinn að pissa!